18. NÓVEMBER 2026

Stangveiðifélag Siglfirðinga fagnaði 70 ára afmælisári með glæsilegri veislu

Stangveiðifélag Siglfirðinga fagnaði 70 ára afmælisári með glæsilegri veislu þann 7. nóvember síðasliðinn. Eyþór Ingi Gunnlaugsson sá um veislustjórn og er óhætt að segja að allir gestir hafið farið til síns heima með bros á vör eftir frábært kvöld.

Stjórn félagsins notaði tilefnið og heiðraði þrjá félagsmenn þetta kvöld. Sigurður Hafliðason og Sigurbjörn Jóhannsson voru gerðir að heiðursfélögum og þá hlaut Bjarni Þorgeirsson gullmerki félagsins. Sigurður Hafliðason gekk í félagið árið 1979 og Sigurbjörn Jóhannsson árið eftir. Báðir hafa verið virkir félagar allan þann tíma og sinnt allskyns stjórnarstörfum og vinnu fyrir félagið. Sigurður meðal annars sinnt formennsku. Bjarni Þorgeirsson fékk svo gullmerki félagsins eftir 37 ára tryggð við félagið.