Archive for the ‘Fréttir’ Category

Guðni Guðbergsson kynnir veiðimál og veiðihorfur á SVAK-kvöldi

April 30th, 2011 | Fréttir | 0 Comments

Guðni Guðbergsson verður á SVAK-kvöldi, mánudaginn 2. mai kl. 20:00 á Hólabrautinni.
Hann verður með fjölbreytt erindi um þróun, stöðu og horfur veiðimála. Komið verður inná þróun veiða í ám og vötnum á undanförnum árum og litið á horfur komandi veiðisumars.

Í hverju eru áhrif stangveiða fólgin?
Hversu sterkt veiðitæki er stöngin?
Vafalítið mun Guðni minnast á Pollinn…)

Að erindi loknu svarar Guðni fyrirspurnum fundarmanna.

Guðni Guðbergsson er fiskifræðingur og sviðsstjóri Auðlindasviðs Veiðimálastofnunar og hefur starfað við rannsóknir á laxi og silungi frá árinu 1979.
Hér er á ferðinni mjög áhugavert erindi frá einum helsta sérfræðingi þjóðarinnar á þessu sviði. Erindið varðar svo sannarlega alla áhugamenn um stangveiðar.

Staður: Hólabrautin
Stund: mánudagur 2. mai kl. 20:00

Allir jafnvelkomnir, SVAK-, Flúða-, Flugu-, Fossa-, eða ekki-félagar.  Veiðimenn sem aðrir.

Heitt á könnunni.

Veiðikveðja
SVAK

.

Tilboð á Veiðikortinu 2011

April 29th, 2011 | Fréttir | 0 Comments

Félagar í Stangaveiðifélagi Siglfirðinga eiga nú kost á að kaupa Veiðikortið 2011 á aðeins 4.800 kr. Veiðikortið veitir ótakmarkaðan aðgang að 35 vatnasvæðum vítt og breitt um landið og má þar nefna Sléttuhlíðarvatn í landi Hrauns.

Aðalfundur Stangveiðifélags Siglfirðinga

March 16th, 2011 | Fréttir | 0 Comments

Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 17. mars næstkomandi í Kiwanishúsinu kl. 20:00.

Dagskrá aðalfundar.

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

2. Skýrsla formanns félagsins.

3. Reikningar ársins 2010.

4. Umræður um skýrslu formanns og reikninga félagsins.

5. Bera reikninga undir atkvæði.

6. Kosning stjórnar.

7. Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.

8. Kaffi.

9. Veiðileyfi fyrir árið 2011. Stjórnin hefur ákveðið að aðeins verði hægt að taka heilt leyfi í Fljótaá og    verða því  þeir veiðimenn sem höfðu hug á hálfu leyfi að taka sig saman við aðra sem voru í sömu hugleiðingum.
Veiðileyfið mun kosta 85 þúsund krónur og er það í samræmi við hækkanir til félagsins. Ekki verður hringt út til félagsmanna með sölu á leyfum, heldur verða menn að skrá sig fyrir leyfi á fundinum enda koma boðum til
stjórnarmanna.

10. Önnur mál.

Stangaveiðitímabilið nálgast

February 23rd, 2011 | Fréttir | 0 Comments

Oft eiga forfallnir stangaveiðimenn erfitt um þetta leiti árs og biðin eftir fyrsta veiðitúr ársins getur verið erfið en þann 1. apríl er opnað fyrir veiði á sumum veiðisvæðum. Nokkrir veiðifíklar nýttu sér fluguhnýtingarnámsskeið um síðustu helgi til að ná smá veiðihrolli úr sér. Það var Sigurður Pálsson veiðimaður og fluguhnýtingarmeistari sem leiðbeindi sex áhugasömum nemendum í listinni að hnýta veiðiflugur. Fyrst var byrjað á undirstöðuatriðunum og hnýttar púpur svo straumflugur og svo endað á laxaflugum. Allir áttu nemarnir það sameiginlegt að dreyma um að veiða þann stóra og það á flugu sem þeir hnýttu sjálfir.

Fluguhnýtinganámskeið

January 25th, 2011 | Fréttir | 0 Comments

Stangveiðifélag Siglfirðinga hefur fengið Sigurð Pálsson veiðimann og fluguhnýtingameistara til að koma og vera með hnýtingarnámskeið 18.-19. og 20 febrúar næstkomandi verður haldið í Lionshúsinu. Sigurður kemur með allt sem til þarf og kostar námskeiðið 15 þúsund krónur á nemanda. Áhugasamir sendi vefpóst á netfangið gunnlaugursg@simnet.is, vinsamlega athugið að það er takmarkaður fjöldi á námskeiðið.

Stangveiðifélag Siglfirðinga

Gleðilegt nýtt veiðiár

January 22nd, 2011 | Fréttir | 0 Comments

Kæru félagar, um leið og við óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir það gamla þá er rétt að segja frá því sem stjórnin hefur verið að gera að undanförnu.

Í samvinnu við SVAK buðum við í Héðinsfjarðaránna og samkvæmt okkar heimildum ætlar veiðifélagið að ganga til samninga við Bjarna Þorgeirsson félaga okkar. Á döfinni er aðalfundur, kastnámskeið og fluguhnýtingarnámskeið. Framundan er spennandi veiðiár við Fljótaá og fróðlegt að sjá hvernig tókst með þær breytingar sem voru gerðar í fyrra.

60 ára afmæli Landssambands Stangaveiðifélaga (LS)

October 28th, 2010 | Fréttir | 0 Comments

Landssamband Stangaveiðifélaga var stofnað þann 29. október 1950, að Hótel Borg í Reykjavík.  „Tildrög stofnunar þessa sambands voru þau að Stangaveiðifélag Akranes ritaði stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur bréf fyrri hluta ársins 1948 og benti á nauðsyn þess að félög stangaveiðimanna stofnuðu með sér slík landssamtök.“, segir í fyrstu fundargerð L.S.  Á stofnfundinn voru mættir fulltrúar frá 11 stangaveiðfélögum og eru sex þeirra enn starfandi og aðilar að LS.

60 ár er allnokkur tími og hefur starfsemi LS tekið miklum breytingum frá upphafsárum þess.  Helstu baráttumál í upphafi voru stofnun Fiskræktarsjóðs en það tók LS 16 ár að fá þennan sjóð inn í lax- og silungsveiðilög þess tíma.  Fiskræktarsjóður hefur styrkt fjölmörg mál frá þeim tíma sem styrkt hefur fiskirækt og aukin búsvæði laxfiska í ám og vötnum.  Þau mál sem LS vann mest að á þessum árum eru fiskirækt, fiskeldi og aukin friðum og að fá lax- og silungsveiðilöggjöfinn breytt til þess.  Þá fylgdi LS því  fast eftir að eftirlit með að veiðibúnaður manna, sem koma erlendis frá sé sótthreinsaður við komu þeirra hingað til lands eða að þeir sýni vottorð um að slíkt hafi verið gert.  Þá tók LS þátt í ferðamálaráðstefnum hér á landi þar sem fjallað var helst um það hvernig fjölga mætti erlendum veiðimönnum til landsins.  LS stóð fyrir veiðimálaráðstefnum í samvinnu við fjölda hagsmunaaðila þar sem fjallað var um m.a. þróun veiðimála, fisksjúkdóma, laxveiðar í Norður-Atlantshafi, rannsóknir á íslenskum veiðivötnum ofl.

LS gerðist aðili að Nordisk Sportfisker Union (NSU) árið 1966 og kom strax í ljós að stangaveiðimenn á Norðurlöndum eiga sameiginlega hagsmunamál og áttu við sömu vandamál að etja.  Þau mál sem voru mest á dagskrá eru:  stangaveiðimöguleikar, fiskvernd, fiskrækt, umhverfismál, mengun og ekki síst laxveiði á alþjóðahafsvæðum í Norður-Atlantshafi.  Á vegum þessara samtaka komu fram fyrstu hugmyndir um að banna laxveiðar á alþjóðasvæðum Atlantshafsins og var áskorun þess efnis send ríkisstjórnum Norðurlandanna.

LS er aðili að nokkrum landssamtökum um náttúruvernd og hagsmunagæslu.  Má þar helst nefna Landvernd og er það vel  enda segir í 3.gr. laga LS um tilgang þess að það skuli vinna að náttúruvernd.

LS hefur haldið fjölmargar áhugaverðar ráðstefnur er tengjast stangaveiði og má þar nefna ráðstefnur um mengun í ám og vötnum, um stórlaxinn, um veiða og sleppa.

Helstu verkefni LS í dag eru samskipti við aðildarfélög LS, samskipti við hagsmunaaðila, átaksverkefni og innlendir viðburðir s.s. veiðidag fjölskyldunnar og samskipti við opinbera aðila á sviði stangaveiða.  Ekki hafa orðið umtalsverðar breytingar á verkefnum og baráttumálum LS á þessu tímabili.  Enn berjumst við fyrir því að netaveiðum á villtum laxi sé settar skorður og barátta fyrir því að varlega sé farið í fiskeldi hefur staðið lengi yfir.

Það er staðreynd að samtök áhugamanna geta mörgu góðu komið til leiðar og komið baráttumálum sínum áleiðis sé unnið markvisst að þeim með samstilltu átaki aðildarfélaganna.

Á þessu má sjá að það er mikill fjöldi mála sem samtökin hafa unnið að og tekið til meðferðar.  Mörg þeirra hafa hlotið afgreiðslu, mismunandi góða, en önnur bíða enn úrlausnar.  Oftast er það svo, að frá því að byrjað er að vinna að einhverjum málum líður fjöldi ára þar til þau ná fram að ganga.

LS mun í tilefni dagsins halda veglega afmælisráðstefnu þann 6. nóvember nk. að Grand Hótel í Reykjavík frá 14-17.  Umfjöllunarefni ráðstefnunnar er:  Seiðasleppingar í ár og vötn.  Allir áhugamenn um stangaveiði eru velkomnir.

Reynir Þrastarson

Formaður Landssambands Stangaveiðifélaga.

GSM 8994291 ef frekari upplýsinga er þörf.

Haustfundur Stangveiðifélags Siglufirðinga

October 20th, 2010 | Fréttir | 0 Comments

Kæri félagsmaður

Haustfundur Stangveiðifélags Siglfirðinga verður haldinn í bláa húsinu ( við hliðina á Hannes boy ) laugardaginn 13. nóvember nk. kl. 19:30.

Fundurinn verður óformlegur en eitthvað hafa þeir Eiður og Þorgeir í pokahorninu en þeir hafa haft veg og vanda af fundinum.

Miðaldamatur verður í boði félagsins og guðaveigar verða einnig á boðstólnum en gegn vægu gjaldi.

Stjórnin hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Dodda Bjarna á netfangið dbjarna@simnet.is eða í síma 861-5980 fyrir hádegi, mánudaginn 7. nóvember.

Með vinsemd,

-Stjórnin-

286 laxar og um 1200 bleikjur veiddust í Fljótaá 2010

September 30th, 2010 | Fréttir | 0 Comments

Nú eru komnar lokatölur um veiði í Fljótaá sumarið 2010. Alls voru skráðir 286 veiddir laxar og um 1200 bleikjur. Ljóst er að töluvert vantar uppá veiðina í laxinum miðað við metárið í fyrra en þá veiddust 466 laxar. Bleikju veiðin er svipuð í ár og í fyrra. Til gamans má geta að veiðistaðurinn Klöppin var með flesta veidda laxa en Bakkahylur er ekki langt frá Klöppinni í veiði. Mest veiddist á Rauða Frances í öllum útgáfum og svo kom Sun Ray Shadows í öllum útgáfum. Alls veiddust 123 laxar 71 cm. og stærri en stærsti laxinn var mældur 99 cm. og var það Orri Vigfússon sem veiddi hann. Veiði gekk vel í veiðislúttinu þó ekki hafi margir mætt. Sibbi náði 97 cm. hæng í ljósaskiptunum á sunndagskvöldið en ekki var hægt að mynda þá félaga sökum myrkurs þá og var það því gert er starfsmaður frá Jónsa Gutta kom til að ná í klakfiskinn, það mun vera þriðji stærsti fiskurinn sem veiddist í sumar.

Read More

Veiðislútt við Fljótaá

September 15th, 2010 | Fréttir | 0 Comments

Næstkomandi sunnudag eftir hádegi mun verða veiðislútt við Fljótaá. Áætlun er um að hittast að Hvammi í Fljótum á laugardagskvöldinu og borða saman fyrir þá sem það vilja og sofa þar. Við höfum alla ánna til umráða á sunndeginum eða frá kl. 15 til 21. Einnig er ráðgert að halda fljótlega haustfund eins og var alltaf gert hér í eina tíð. Áhugasamir félagar vinsamlega tilkynnið þátttöku til Gulla Stebba í síma 868-7291 fyrir kl.15 á föstudaginn. Á vef angling.is má sjá að 8. september var búið að veiða 255 laxa í Fljótaá og má því ætla að það styttist verulega í 300 laxa markið.