Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.
Fyrirlesari er dr. Margaret J. Filardo líffræðingur, forstöðumaður Fiskvegamiðstöðvarinnar (Fish Passage Center) í Oregonfylki í Bandaríkjunum.
Miðstöðin er vísindaleg tæknistofnun sem stundar rannsóknir á ferðum gönguseiða og fullorðinna fiska.
Aðrir sem taka til máls:
Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsvirkjunar.
Áhrif virkjana í neðri hluta Þjórsár á laxfiska.
Magnús Jóhannsson, fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun.
Rannsóknir á fiskstofnun Þjórsár vegna fyrirhugaðra virkjana í neðri
hluta Þjórsár.
Fyrirspurnir og umræður.
Umræðum stjórnar dr. Guðrún Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða.
Tilefni fyrirlestrarins er að nú stendur yfir opið umsagnarferli um drög að þingsályktun iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra um verndun og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði. Umsagnarferlinu lýkur 11. nóvember nk. og fer málið þá í kjölfarið til meðferðar Alþingis. Áherslan í þessu ferli beinist m.a. að villtu laxa- og sjóbirtingsstofnunum í Þjórsá og áhrifum virkjana í neðri hluta árinnar á þá.
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.
Fyrirlesturinn er öllum opinn en hægt er að tilkynna þátttöku til nasf@vortex.is