Archive for July, 2011

Barna og unglingadagur 18. júlí

July 14th, 2011 | Fréttir | 0 Comments

Félagsmönnum í Stangaveiðifélagi Siglfirðinga gefst tækifæri á mánudaginn 18. júlí að fara með skyldmenni sín 16 ára og yngri til veiða í Héðinsfjarðará. Veiðitíminn er frá kl. 10:00 til kl. 22:00, skráning er hjá Dodda málara í síma 8615980. Leyfilegt er að veiða á flugu,maðk og spún. Héðinsfirðingarnir og feðgarnir Bjarni Þorgeirsson og Þorgeir Bjarnason munu stýra veiðunum og setja veiðimenn niður á svæði. Athugið að það verður hver og einn að koma með sinn veiðibúnað.

Veiði byrjar í Fljótaá

July 2nd, 2011 | Fréttir | 0 Comments

Félagsmenn í Stangaveiðifélagi Siglfirðinga hefja veiði í Fljótaá í dag en síðastliðinn sunnudag bauð leigutakinn Orri Vigfússon stjórnarmönnum og fyrrverandi formönnum í opnun árinnar. Einn lax og fjöldi allur af bleikju fékkst í opnunni og telja fróðir menn að þetta viti á gott sumar í Fljótaá. Eins og áður er öllum lax sleppt aftur í ánna enda margmiðið að gera ánna algerlega sjálfbæra. Bleikju má hinsvegar hirða í hófi. Unnið var að lagfæringum á hrygningarstöðum laxins í fyrrahaust á svæði 1 en strax í vikunni eftir það mátti sjá laxapör í djörfum leik á þeim stöðum og binda menn miklar vonir við þessa aðferð við að koma hrygningarstöðunum í gott horf.