Stórlax úr Bakkahyl

Höf. gulli | Dags. 28.08.10 | Fréttir

Veiðimaðurinn Birgir Már Bragason landaði og sleppti c.a. 20 punda laxi úr Bakkahyl síðastliðinn þriðjudag. Hannes Bald sendi okkur þessa mynd af veiðimanni og laxi. Baráttan við laxinn stóð í tæpan klukkutíma en laxinn tók rauða frances 1/2″ keiluhaus. Gaman væri ef fleiri sendu okkur myndir og texta um Fljótaá.