Þá er nýji vefurinn loksins kominn í loftið og munum við nota hann óspart til að miðla upplýsingum til félagsmanna. Veiðin í Fljótaá hefur farið með ágætum af stað á flestum svæðum. Nú nálgast veiðin á laxi um 115 stk. og mikil og góð bleikju veiði hefur verið á öllum svæðum. Þess ber þó að geta að það er aðeins leyfð 1 stöng á hverju svæði og ef menn verða fyrir því að lax drepist hjá þeim ber að skila honum til veiðivarðar sem er Halldór á Molastöðum. Nú geta þeir sem búa á Siglufirði skráð sína veiði hjá Gulla Stebba í Sparisjóðinum.
Nafn *
Netfang (ekki birt á síðunni) *
Vefsíða
Click here to cancel reply.