Frábær vakt í Fljótaá

Höf. gulli | Dags. 01.08.10 | Fréttir

Föstudaginn 30. júlí fórum við bræður ásamt syni mínum í Fljótaá. Ekta veiðiveður var þennan dag. Við áttum seinni vakt á svæði eitt og þrjú. Bróðir minn fékk tvo fiska í efri og neðri Prestlænum ásamt nokkrum bleikjum. Við feðgar vorum á svæði eitt og lentum í flottri veiði. Við settum í sjö laxa og lönduðum þeim öllum ásamt því að ná um tuttugu bleikjum. Það var fiskur útum allt og þeir voru í mikilli sýningarþörf þennan eftirmiðdag. Mesta fjörið var undir Klöpp, en þar náðum við þremur löxum. Einn fékks í Bakkahyl, einn á Steinseyrarbreiðu, einn í Ármótahyl og einn á Breiðunni fyrir ofan Ármótahyl.

Stærsti fiskurinn náðist á Klöppinni og var það 85 cm hrygna. Hún var erfið viðureignar og sýndi sig ekki fyrr en eftir 15-20 mín, kafaði djúpt og synti upp strauminn (á tímabili hélt ég að hér væri um risalax að ræða). Þegar hún fór svo að þreytast sá ég hvar glitti í bleikt á hliðinni á hrygnunni. Þegar henni var landað kom í ljós að hún var með mikið og ljótt sár á hliðinni, líklega eftir sel. Hún fékk nú samt að njóta vafans og fékk að synda aftur útí hylinn sinn. Næst stærsti fiskurinn kom líka á klöppinni og var það 77 cm hrygna sem sonur minn landaði einn og óstuddur. Einn af þessum sjö löxum var grá-lúsugur, smá hængur.

Allir fiskarnir á svæði eitt komu á svartar flugur, svört frances, svört snælda og sunrey með keilu. Á svæði þrjú komu fiskarnir á rauða frances með keilu. Bleikjan var óð í allt sem fór í vatnið og oft vorum við að setja í bleikju þegar við vorum að reyna við lax sem hafði sýnt sig. Sem sagt frábær dagur í Fljótánni.

Kveðja Róbert Haraldsson.

30.júl    Fljótá
Klöppin    Hrygna    85 cm    Sunrey m. keilu    Selbit
Klöppin    Hrygna    77 cm    Sunrey m. keilu    Kristófer Róbertsson
Klöppin    Hrygna    65 cm    Sunrey m. keilu
Steinseyrarbreiða    Hrygna    63 cm    Svört snælda
Breiðan    Hængur    64 cm    Svört snælda
Bakkahylur    Hængur    61 cm    svört frances
Ármótahylur    Hrygna    50 cm    Sunrey    Lúsug
Efri Prestlænur    Hrygna    60 cm    r. Frances m. keilu    Aron Tómas Haraldsson
Neðri Prestlænur    Hrygna    65 cm    r. Frances m. keilu    Aron Tómas Haraldsson

Svæði 1. 17 Bleikjur – alls staðar – alls konar flugur.
Svæði 3.  6 Bleikjur – Efri og neðri Prestlænur – rauð frances með keilu