Archive for July 29th, 2010

Mun Fljótaá slá met sitt í ár?

July 29th, 2010 | Fréttir | 0 Comments

Ritstjóri með 77 cm hæng, 4,8 kg samkvæmt kvarðanum, en skráður 5 kg, sem sagt 10 pund og byggt á þreklegum vexti. Laxinn tók Black and Blue hálfs tommu keilu í Neðri Prestlænu en var landað miklu neðar eftir æsilegan eltingarleik niður hraðar flúðir.

Fljótaá í Fljótum er gersamlega pökkuð af fiski. VoV Stóð óvænt til boða að veiða í ánni tvær vaktir og það er óhætt að segja að það var ekki friður fyrir fiski. Áin er fullsetin af bæði sjóbleikju og laxi, en samt er enn fiskur að ganga og mjög góður veiðitími eftir.
Að sögn Orra Vigfússonar, sem leigir ána ásamt Stangaveiðifélagi Siglufjarðar, þá er þetta allra besta veiði sem verið hefur í ánni frá því að samstarfið hófst. „Fljótaá er ekkert allra og hún er sums staðar erfið, en það er mikið af fiski í henni í sumar og menn hafa yfirleitt verið að gera það gott,“ sagði Orri. Read More